Þann 22. apríl 2010 skipaði Fjármálaeftirlitið (FME) Byr sparisjóði (kt. 610269-2229) bráðabirgðastjórn með heimild í 100. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, samanber 4. gr. laga nr. 44/2009 um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Störfum bráðabirgðastjórnar lauk þann 2. júlí 2010 er héraðsdómur Reykjavíkur skipaði Byr sparisjóði slitastjórn samkvæmt heimild í 4. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002, samanber 5. gr. laga nr. 44/2009. Meðal verka slitastjórnar er að annast meðferð krafna á hendur sparisjóðnum á meðan á slitameðferð stendur.

Frestdagur er 16. júní 2009, samanber 5. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 og 5. gr. laga nr. 44/2009, en á þeim degi veitti FME Byr sparisjóði fyrst frest til að auka eiginfjárgrunn sinn að lágmarki samkvæmt 84. gr. og 4. mgr. 86. gr. laga nr. 161/2002. Upphafsdagur slitameðferðar er 2. júlí 2010 og miðast við uppkvaðningu úrskurðar héraðsdóms Reykjavíkur um skipun slitastjórnar, samanber 2. ml. 3. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 og 2. ml. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 44/2009.

Hér með er skorað á alla þá sem telja til hvers kyns skulda eða annarra réttinda á hendur Byr sparisjóði eða eigna í umráðum sparisjóðsins, að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir slitastjórn innan þriggja mánaða frá fyrri birtingu þessarar innköllunar í Lögbirtingablaði. Innköllunin var dagsett 8. júlí 2010 en birt í Lögbirtingablaðinu þann 13. júlí 2010 og því skulu kröfulýsingar hafa borist slitastjórn í síðasta lagi 13. október 2010. Kröfulýsingar skulu hafa borist slitastjórn innan fyrrgreinds tímamarks og skal efni þeirra vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti.

Kröfulýsingar skulu sendar til:

Slitastjórn Byrs sparisjóðs
Borgartúni 18
105 Reykjavík

Vegna fyrrgreindra lagaákvæða er því beint til kröfuhafa að í kröfulýsingu komi fram sundurliðuð fjárhæð kröfu þann 2. júlí 2010.

Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt. Kröfuhöfum frá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á tungumáli heimalands síns. Slíkum kröfulýsingum skal fylgja íslensk þýðing, en þó er heimilt að lýsa kröfum á ensku án þess að þýðing fylgi. Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum á ensku.

Sé kröfum ekki lýst innan framangreinds frests gilda um það sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu skv. 118. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti og telst hún því fallin niður gagnvart Byr sparisjóði nema undantekningar í 1.-6. tl. lagaákvæðisins eigi við.

Sérstaklega skal áréttað að með kröfulýsingu telst kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu (bankaleyndar) að því er varðar viðkomandi kröfu.

Hér með er boðað til kröfuhafafundar sem haldinn verður miðvikudaginn 17. nóvember 2010 kl. 15 að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík. Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur sparisjóðinum. Á fundinum verður fjallað um skrá yfir lýstar kröfur og afstöðu slitastjórnar til þeirra að því leyti sem hún liggur fyrir. Skrá yfir lýstar kröfur verður aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á hendur sparisjóðinum að minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund.

Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna má fá með því að beina fyrirspurnum á netfangið slitastjorn@byr.is.

Til að auðvelda miðlun upplýsinga beinir slitastjórn þeim tilmælum til kröfuhafa að þeir tilgreini tölvupóstfang sitt eða umboðsmanns síns. Jafnframt að tilgreindur sé bankareikningur til útgreiðslu, þegar og ef til hennar kemur.

Kröfuhafar eru hvattir til að lýsa kröfu sem fyrst þar sem líkur á því að fjöldi kröfulýsinga verði umtalsverður.

Nánari upplýsingar

Disclaimer: This information is for informational purposes only and shall not be made legally binding towards Byr Savings Bank, its Winding-up Committee of Byr hf. Please note the terms of the general disclaimer governing use of this website and the information contained on the website.

Stillingar