Aðgengismál
Vefur Byrs sparisjóðs (www.byr.is) hefur hlotið aðgengisvottun (forgangur 1og 2) frá fyrirtækinu Sjá ehf. og Öryrkjabandalaginu þess efnis að vefur Byrs standist kröfur um aðgengi fatlaðra. Forgangur 1 er lágmarkskrafa sem gerð er um aðgengi á vef, en forgangur 2 gerir meiri kröfur. Vottunin nær eingöngu til íslenskra hluta vefsins.
Það sem felst í aðgengisvottun (forgangur 1 og 2) er eftirfarandi.
- Vefurinn er aðgengilegur öllum þeim sem nýta sér skjálesara (skjálesari er sérstakt tól sem blindir og sjónskertir nota)
- Hreyfihamlaðir notendur geta notað vefinn án þess að nota mús.
- Hægt er að stækka og minnka letur á vefnum
- Hægt er að breyta um bakgrunnslit fyrir sjónskerta og/eða lesblinda. Uppsetning á síðu helst óbreytt.
- Þær vefsíður sem innihalda virkni (reiknivélar og beiðnir) hafa skýrar leiðbeiningar um tilgang virkninnar.
- Skammstafanir eru útskýrðar í þeim tilfellum þegar þær eru notaðar.
- Öll nöfn á tenglum eru skýr.
- Allar myndir hafa ALT texta.
- Viðhengi eru útskýrð, fram kemur tegund skráar.
- Notkun PDF skjala á vefnum er stillt í hóf.
- Vefurinn virkar án forskrifta (enska: Javascript) í meginatriðum.
- Vefur Byrs virkar í öllum helstu vefvöfrum sem notaðir eru hverju sinni
Vottun vefráðgjafarfyrirtækisins Sjá byggist á gátlistanum WAI (Web Accessibility Initiative) og hefur hann verið uppfærður miðað við nýjustu útgáfu sem er alþjóðlegur staðall fyrir aðgengi á Netinu. Sjá hefur í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands sniðið listann að íslenskum aðstæðum og hefur hann verið prófaður af notendum með margs konar fötlun.
Fyrirvari
- Verðbréf: Þær verðbréfasíður sem innihalda upplýsingar frá Kauphöll Íslands (eru ekki aðgengisvottaðar) (lagað í lok 2009)
- Umsóknir: Starfsumsókn (er ekki aðgengisvottuð) (lagað í lok 2009)
Heima- og fyrirtækjabanki Byrs hafa þegar hlotið aðgengisvottun (forgangur 1 og 2), auk þess sem allar umsóknir (að starfsumsókn undanskilinni) á vefnum eru aðgengisvottaðar.
Nánari upplýsingar um vefinn er hægt að fá með því að senda okkur fyrirspurn.
