Eignastýring

Hvað er eignastýring?

Eignastýring er sérfræðiþjónusta, sérstaklega sniðin að þörfum viðskiptavina sem eiga yfir fimm milljónir króna og vilja aðstoð sérfræðinga við ávöxtun fjármuna sinna.


Helstu kostir

  • Ítarleg greining á fjárhagsstöðu
  • Reynslumiklir sérfræðingar
  • Stöðug vöktun og virk stýring
  • Áhættudreifing eigna 
  • Viðskipavinir njóta betri kjara
  • Hærri innlánsvextir
  • Lægri viðskiptakostnaður
  • Ráðgjöf varðandi skattamál 

Fjárfestingarstefna

Í upphafi er mótuð fjárfestingarstefna í samráði við starfsfólk eignastýringar sem annast stýringu eignasafnins. Þegar fjárfestingarstefna hefur verið valin þá er næsta skref að setja saman mismunandi tegundir verðbréfa og mynda með því safn. Safninu er svo breytt í samræmi við þróun fjármálamarkaða á hverjum tíma, en þó innan þeirrar fjárfestingarstefnu sem valin hefur verið. Þá er ákveðið hver skipting á milli hlutabréfa og skuldabréfa skuli vera en þessi skipting ræður mestu um áhættu eignasafnsins. Þegar valin er fjárfestingarstefna er m.a. tekið tillit til aldurs fjárfestis, eignastöðu, tímalengdar fjárfestingar auk áhættuþols og viðhorfs fjárfestis til áhættu. 

Markmið

Við leggjum áherslu á persónuleg tengsl og góða upplýsingagjöf. Hver viðskiptavinur hefur sínar þarfir og grundvallast þær af því hvaða væntingar viðkomandi gerir til ávöxtunar og hversu mikla áhættu hann er reiðubúinn að taka. Markmið með eignastýringu er að hámarka ávöxtun með tilliti til áhættuþols viðskiptavinar.

Fjárfestingarleiðir

Eignastýring Byr Verðbréfa býður viðskiptavinum sínum upp á þrjár mismunandi fjárfestingarleiðir í formi samsettra eignasafna. Það er staðreynd að áhætta og ávöxtun haldast í hendur. Eftir því sem fjárfestir sækir í hærri ávöxtun því meiri áhættu er hann að taka. Ávöxtun hlutabréfa er yfirleitt háð meiri óvissu en ávöxtun skuldabréfa og því felur fjárfesting í hlutabréfum yfirleitt í sér meiri áhættu en fjárfesting í skuldabréfum. Áhættan er þannig minnst í Leið 1 en mest í Leið 3. 


Við leggjum áherslu á að halda viðskiptakostnaði í lágmarki og því  fá viðskiptavinir eignastýringar afslátt af viðskiptaþóknunum í verðbréfaviðskiptum.

Hver viðskiptavinur fær að lágmarki sent yfirlit tvisvar á ári. Einnig er hægt að nálgast yfirlit á netinu í heimabanka Byrs eða fá sent í pósti hvenær sem er.  Auk þess er hægt að fá fund með sérfræðingi í eignastýringu hvenær sem er. 

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar þá vinsamlegast sendu okkur póst eða hringdu í síma 575 4000.

Stillingar