Fréttir
Fréttir af fjármálamarkaði
Í síðustu viku héldu allir verðtryggðu flokkarnir áfram að lækka, mest lækkaði lengsti flokkurinn eða um 0,84%. Löngu óverðtryggðu bréfin hækkuðu hins vegar nokkuð, en mest hækkaði RIKB 19 eða um 0,78%. Undanfarna daga hefur veltan með skuldabréf verið frekar lítil og er það til marks um þá óvissu sem ríkir á markaðinum, þ.e. varðandi lyktir Icesave, frekari stýrivaxtalækkun, verðbólguhorfur svo eitthvað sé nefnt.
Meira | Skrifað þann 08. febrúar 2010
Fréttir af fjármálamarkaði - síðasta vika
Verðtryggðu bréfin stóðu sig heldur betur en þau óverðtryggðu í síðustu viku, fjárfestar virðast hallast enn að verðtryggðu flokkunum, þrátt fyrir að krafan á þeim sé orðin mjög lág. Möguleg skýring á því gæti verið verðbólguótti, óvissa um lyktir Icesave málsins og almenn óvissa í íslensku efnahagslífi.
Meira | Skrifað þann 25. janúar 2010
Fréttir af fjármálamarkaði - síðasta vika
Í síðustu viku áttu skuldabréfin, verðtryggðu og óverðtryggðu, fínan sprett. Mest hækkaði lengsta óverðtryggað bréfið, RIKB 25 0612 eða um 1,25%, önnur hækkuðu minna. Óverðtryggðu flokkarnir náðu þó ekki að vinna til baka þá lækkun sem varð á þeim í síðustu viku (viku 1), en mikil lækkun varð þá í kjölfar synjunar forseta Íslands á Icesave lögunum svokölluðu. Það sem af er degi hafa allir verðtryggðu flokkarnir hækkað, á meðan óverðtryggðu flokkarnir hafa allir gefið örlítið eftir.
Meira | Skrifað þann 18. janúar 2010
Fréttir af fjármálamarkaði - síðasta vika
Óhætt er að segja að síðasta vika hafi verið ákafleg fjörug á skuldabréfamarkaði. Í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands um að synja Icesave lögunum svonefndu staðfestingar urðu sterk viðbröð á skuldabréfamarkaði. Allir verðtryggðuflokkarnir hækkuðu verulega á meðan allir óverðtryggðuflokkarnir lækkuðu, þó mest lengstu óverðtryggðu bréfin RIKB 25 og 19. Það lítur því út fyrir að fjárfestar hafi kosið að færa sig yfir í öruggari fjárfestingarkost, þ.e. verðtryggð bréf, á meðan óvissan um lyktir Icesave málsins varir.
Meira | Skrifað þann 11. janúar 2010
Fréttir af fjármálamarkaði
Mjög mikil viðskipti voru á skuldabréfamarkaði í síðustu viku, á það m.a. rætur að rekja til vaxtaákvörðunar Seðlabankans og útgáfu Peningamála. Allir verðtryggður flokkarnir hækkuð verulega í verði í síðastliðinni viku á meðan allir óverðtryggðu flokkarnir lækkuðu. Má þetta fyrst og fremst rekja til þess að Seðlabankinn er nú svartsýnni en áður hvað varðar verðbólguþróun næstu misseri.
Meira | Skrifað þann 09. nóvember 2009
Af fjármálamarkaði
Frekar rólegt var yfir verðtryggðu bréfunum í síðustu viku þó svo að viðskipti hafi verið með líflegra móti. Lengstu óverðtryggðu bréfin áttu hins vegar góðan sprett, þó sér í lagi lengsta bréfið RIKB250612 sem hækkaði um 1,61%, önnur bréf hækkuðu minna.
Meira | Skrifað þann 26. október 2009
Markaðsfréttir - síðasta vika
Frekar rólegt var yfir verðtryggðu skuldabréfunum í síðustu viku, lengsta og styðsta bréfið lækkuðu örlítið á meðan hin tvö þ.e. HFF150434 og HFF150224 hækkuðu örlítið. Það fyrr nefnda um 0,01% og hið síðar nefnda um 0,05%. Lengstu óverðtryggðu bréfin áttu hins vegar fína viku og hækkaði RIKB25 um 1,61% og RIKB 19 um 1,08%, styðstu bréfin lækkuðu hins vegar nokkuð.
Meira | Skrifað þann 19. október 2009
Síðasta vika á fjármálamarkaði
Í síðustu viku áttu verðtryggðu bréfin fínan sprett, en þau hækkuðu um 0,93%. Í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar SÍ og tilkynningu um að boðið yrði að nýju upp á svokölluð innistæðubréf lækkuðu óverðtryggðu bréfin nokkuð, en hækkuðu þó um 0,48% í vikunni.
Meira | Skrifað þann 30. september 2009
Fréttir af fjármálamarkaði
Öll verðtryggðu bréfin lækkuðu í síðust viku, næst lengsta bréfið, HFF150434, lækkaði mest eða um 0,40%. Hins vegar hækkuðu öll óverðtryggðu bréfin, fyrri utan RIKB 10 1210 sem lækkaði um 0,032%. Hækkun á óverðtryggðu bréfunum kemur nokkuð á óvart þar sem flestir greinendur spá því að verðbólga muni mælast í kringum 0,7% á milli ágúst og september.
Meira | Skrifað þann 21. september 2009
Af fjármálamarkaði
Líkt og í þar síðustu viku, þ.e. frá 6-13 september, hækkuðu verðtryggðu bréfin heldur meira en þau óverðtryggðu. Einu ríkistryggðu bréfin sem lækkuðu í síðustu viku voru RIKB 10 1212 og RIKB 10 0317, það fyrr nefnda lækkaði um 0,09% og hið síðar nefnda um 0,24%.
Meira | Skrifað þann 14. september 2009
