MiFID
Hvað er MiFID
MiFID (Markets in Financial Instruments Directive, 2004/39/EC ) er tilskipun frá Evrópusambandinu sem miðar að því að setja samræmdar reglur um neytendavernd fjárfesta og skapa sameiginlegan innri markað með fjármálaþjónustu. MiFID reglurnar gilda fyrir fjárfestingabanka, sjóðstýringarfyrirtæki og verðbréfamiðlun og miðar tilskipunin að því að skapa skilvirkan sameiginlegan innri markað með fjármálaþjónustu m.a. með öflugara eftirliti og neytendavernd. Hún nær til allra ríkja ESB auk Íslands, Noregs og Liechtensteins.
Ný lög um verðbréfaviðskipti voru innleidd 1. nóvember með MiFID tilskipuninni og með þeim breyttust ýmsar mikilvægar reglur. Þar má nefna að hugtökin fjármálagerningur og verðbréfaviðskipti fá víðtækari skilgreiningu og strangari kröfur verða gerðar á eftirlit, faglegri framkvæmd og upplýsingagjöf. Er þá öllum MiFID-fyrirtækjum gert skylt að flokka viðskiptavini sína í almenna fjárfesta, fagfjárfesta eða viðurkennda gagnaðila, og tilkynna þeim hvaða flokki þeir tilheyri og hvaða þýðingu það hafi. Fara flokkarnir eftir hæfni og reynslu viðskiptavinarins.
Flokkarnir
Almennir fjárfestar: Í þessum flokki eru flestir einstaklingar og smærri fyrirtæki og félög. Þeir njóta hámarksverndar ákvæða verðbréfaviðskiptalaganna um neytendavernd fjárfesta.
Fagfjárfestar: Þeir sem búa yfir reynslu, þekkingu og sérfræðikunnáttu lenda í þessum flokki. Þeir taka sjálfir ákvarðanir um fjárfestingar og meta áhættuna sem þeim fylgir.
Viðurkenndir gagnaðilar: Geta t.d. verið lögaðilar sem hafa starfsleyfi eða sinna lögbundinni starfsemi á fjármálamörkuðum, stór fyrirtæki sem uppfylla skilyrði um t.d. efnahagsreikning og ársveltu og ríkistjórnir, sveitarfélög, seðlabankar og alþjóðastofnanir. Þessir njóta minni fjárfestarverndar en aðrir fagfjárfestar, en geta þeir einnig tilheyrt flokki fagfjárfesta.
Kynnið ykkur ítarlegri umfjöllun um flokkun fjárfesta hér eða samantekt á flokkunarreglunum.
Hvernig hefur MiFID áhrif á viðskiptavini?
MiFID reglugerðin gerir þær kröfur að flokka eigi viðskiptavini eftir stöðluðum viðmiðum og hæfni en það er m.a. liður í að vernda fjárfesta. Stöðluð viðmið og samræmdar reglur gera fyrirtækjum það auðveldara að veita þjónustu á milli landa og koma til móts við væntingar viðskiptavina. Eftir breytingarnar fá fjárfestar ítarlegri upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum en þeir gerðu og er meginmarkmið löggjafarinnar m.a. að viðskiptavinurinn fái ávallt viðeigandi upplýsingar, ráðgjöf og bestu mögulegu niðurstöðu. Þá er fyrirtækjum gert skylt að gera skriflega samninga við viðskiptavini sína auk þess að halda skrár yfir þjónustu og viðskipti sem þau hafa milligöngu um á sviði verðbréfaviðskipta.
- Upplýsingarit Samtaka fjármálafyrirtækja um MiFID (PDF skjal 330KB)
