Flokkun viðskiptavina
Flokkun viðskiptavina MiFID
Flokkun viðskiptavina er þrenns konar. Almennir fjárfestar, fagfjárfestar og viðurkenndir gagnaðilar. Hver flokkur þarf mismikla neytendavernd og er því flokkaður eftir því.
Almennir fjárfestar eru þeir sem njóta fullrar verndar samkvæmt lögum nr 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Allir einstaklingar falla undir almenna fjárfesta í fyrstu flokkun.
Fagfjárfestar eru:
- Lögaðilar, hér á landi eða erlendis, sem hafa starfsleyfi eða sinna lögbundinni starfsemi á fjármálamörkuðum, þ.m.t. fjármálafyrirtæki og fyrirtæki tengd fjármálasviði, vátryggingafélög, sjóðir um sameiginlega fjárfestingu og rekstrarfélög þeirra, lífeyrissjóðir og rekstrarfélög þeirra eftir því sem við á, seljendur hrávöru og hrávöruafleiðna, staðbundnir aðilar og aðrir stofnanafjárfestar.
- Stór fyrirtæki sem uppfylla a.m.k. tvö af eftirfarandi skilyrðum:
- heildartala efnahagsreiknings er 1.847 m.kr. eða hærri,
- hrein ársvelta er 3.695 m.kr. eða meiri,
- eigið fé er 185 m.kr. eða meira.
- Ríkisstjórnir og sveitarstjórnir, seðlabankar og alþjóðastofnanir, svo sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Seðlabanki Evrópu, Fjárfestingarbanki Evrópu og aðrar sambærilegar alþjóðastofnanir.
- Aðrir stofnanafjárfestar sem hafa það að aðalstarfi að fjárfesta í fjármálagerningum, þ.m.t. aðilar sem fást við verðbréfun eigna eða önnur fjármögnunarviðskipti.
- Aðilar sem samþykktir hafa verið sem fagfjárfestar á grundvelli 24. gr.
Viðurkenndir gagnaðilar njóta minnstu verndar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. Á því er byggt að þeir hafi mestan fjárhagslegan styrk, reynslu, þekkingu og sérfræðikunnáttu af öllum viðskiptavinum og þurfi þar af leiðandi ekki á jafn mikilli vernd og leiðsögn að halda og til dæmis almennir fjárfestar. Viðskiptavinum í þessum flokki er frjálst að óska eftir því að skipta um flokk og njóta aukinnar verndar, annað hvort sem fagfjárfestar eða almennir fjárfestar.
