Spurt og svarað

Hvað þarf ég að gera sem fjárfestir?

Þeir sem eiga í verðbréfaviðskiptum verða að samþykkja skilmála fjármálafyrirtækisins svo viðskipti geta farið fram.

Hvað gerist ef ég samþykki ekki flokkunina?

Samkvæmt MiFID verða allir viðskiptavinir að hafa samþykkt skilmálana. Allir viðskiptavinir verða að vera flokkaðir.

Er hægt að færa sig á milli flokka?

Já, í sumum tilfellum. Fjármálafyrirtækið verður þó alltaf að samþykkja flutningana. Ef viðskiptavinur hefur verið flokkaður sem viðurkenndur gagnaðili getur hann fengið meiri vernd og fært sig í flokkinn fagfjárfestir. Þeir sem hafa verið flokkaðir sem almennir fjárfestar verða að sækja sérstaklega um að fá að vera fagfjárfestar.

Af hverju þarf ég að upplýsa ráðgjafa minn um fjárhagsstöðu mína og/eða verðmæti hjá öðrum fjármálafyrirtækjum?

Til að fá bestu mögulegu þjónustu og upplýsingar er ráðlagt að greina frá öllum viðskiptum hjá öllum fjármálafyrirtækjum.

Stillingar