Alþjóða vaxtarsjóðurinn

Fjárfestingarstefna og markmið

Alþjóða vaxtasjóðurinn fjárfestir í hlutabréfum fyrirtækja og verðbréfasjóðum sem hafa vaxtarmöguleika víðsvegar um heiminn. Áhersla er lögð á vaxtartækifæri fyrirtækja, atvinnugreina og þeirra heimshluta sem þau starfa í. Markmið sjóðsins er að gera betur en viðmiðunarvísitalan MSCI Growth.

Fyrir hverja er sjóðurinn?

Alþjóða vaxtasjóðurinn hentar vel þeim fjárfestum sem þola miklar sveiflur í ávöxtun með von um góða langtímaávöxtun. Sjóðurinn er góður kostur fyrir þá sem vilja fjárfesta í alþjóðlegum verðbréfum með góðri áhættudreifingu. Ráðlagður fjárfestingartími er a.m.k. 4 ár. 

Skattamál

Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Við innlausn greiðist fjármagnstekjuskattur (10%) af jákvæðum mismun söluverðs að frádregnu kaupverði og þóknun.

Frekar upplýsingar um sjóðinn

  • Stofnár: 2006
  • Kaupþóknun: 2%
  • Afgreiðslugjald: 350 kr.
  • Áskriftarmöguleiki: Já, og þá er veittur 40% afsláttur af kaupþóknun
  • Umsýsluþóknun: 1,5%
  • Sjóðsstjóri: Ármann Einarsson
  • Uppgjörstími: 3 viðskiptadagar (T+3)
  • Rekstraraðili: Rekstrarfélag Byrs hf.
  • Vörsluaðili: Arion verðbréfavarsla hf.
  • Viðskiptatími:
      Sumartími (apríl - okt): 10:00-15:20
      Vetrartími (nóv - mars): 10:00-16:20 
  • Rekstrarform: Verðbréfasjóður samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og fjárfestingasjóði nr. 30/2003

Nánari upplýsingar um sjóðinn eru veittar í síma 575-4000. Auk þess er bent á útboðslýsingu til frekari útskýringar á sjóðnum.

Áhætta

Búast má við miklum sveiflum á gengi sjóðsins, í takt við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Sjóðurinn er gerður upp í íslenskum krónum en eignir í erlendum gjaldmiðlum og því fylgir sjóðnum gengisáhætta. Gengi hlutabréfa er háð væntingum um afkomu og framtíðarvöxt fyrirtækja. Þá hafa ytri skilyrði einnig áhrif á gengi sjóðsins svo sem efnahagsástand.

Áhættuflokkun

Áhættuflokkar sjóða Byrs eru 6 og því hærri sem flokkurinn er því meiri er áhættan. Alþjóða vaxtarsjóðurinn er í áhættuflokki 6.

    Stillingar