Skuldabréfasjóðurinn

Fjárfestingarstefna og markmið

Markmið Skuldabréfasjóðsins er að veita trygga og örugga ávöxtun. Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í ríkistryggðum verðbréfum, t.d.ríkisbréfum, íbúðarbréfum, húsbréfum og ríkisvíxlum. Leitast er við að fjárfesta í þeim ríkistryggðu skuldabréfum sem gefa hæsta ávöxtun hverju sinni. Líftími sjóðsins er á bilinu 6-10 ár.

Samkvæmt vefsíðunni sjodir.is skilaði skuldabréfasjóður Byrs bestu nafnávöxtun allra sjóða fyrir árið 2009 sem sem eingöngu fjárfesta í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum og víxlum.

Fyrir hverja er sjóðurinn?

Skuldabréfasjóðurinn hentar vel þeim fjárfestum sem vilja góða langtímaávöxtun og þola nokkrar sveiflur í ávöxtun. Sjóðurinn er góður kostur fyrir þá sem vilja njóta þess öryggis sem felst í að fjárfesta í ríkistryggðum bréfum. Ráðlagður fjárfestingartími er a.m.k. 3 ár.

Skattamál

Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Við innlausn greiðist fjármagnstekjuskattur (10%) af jákvæðum mismun söluverðs að frádregnu kaupverði og þóknun. 

Frekar upplýsingar um sjóðinn

  • Stofnár: 2000
  • Kaupþóknun: 1%
  • Afgreiðslugjald: 350 kr.
  • Áskriftarmöguleiki: Já, þá er veittur 40% afsláttur af kaupþóknun 
  • Umsýsluþóknun: 0,85%
  • Sjóðastýring: Ármann Einarsson
  • Uppgjörstími: 1 viðskiptadagur (T+1)
  • Rekstraraðili: Rekstrarfélag Byrs hf.
  • Vörsluaðili: Arion verðbréfavarsla hf.
  • Viðskiptatími:
      Sumartími (apríl-okt): 10.00–15.20
      Vetrartími (okt-mars): 10:00-16:20
  • Rekstrarform: Verðbréfasjóður samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og fjárfestingasjóði nr. 30/2003
  

Nánari upplýsingar um sjóðinn eru veittar í síma 575-4000. Auk þess er bent á útboðslýsingu til frekari útskýringar á sjóðnum. 

Áhætta

Skuldabréfasjóðurinn fjárfestir í skuldabréfum sem hafa nokkuð langan líftíma. Sveiflur geta því orðið á gengi sjóðsins í takt við þróun á íslenskum skuldabréfamarkaði. Helsta áhætta sjóðsins felst í þróun markaðsvaxta (vaxtaáhætta) en skuldaraáhætta er aftur á móti lítil þar sem sjóðurinn fjárfestir einungis í ríkistryggðum verðbréfum.

Áhættuflokkun

Áhættuflokkar sjóða Byrs eru 6 og því hærri sem flokkurinn er því meiri er áhættan. Skuldabréfasjóðurinn er í áhættuflokki 4. 

Stillingar